<$BlogRSDURL$>

miðvikudagur, apríl 21, 2010

Er hlustandi online á nýju Broken Social Scene plötuna og ég fékk gæsahúð þegar ég byrjaði að hlusta og það munaði litlu að ég táraðist ...já það er svona gaman að fá nýtt stöff frá þeim. Hlakka rugl mikið til að sjá þá í Berlin í Maí.

Síðastliðinn föstudag ætlaði ég að bjóða nokkrum hræðum í heimsókn en svo var ég orðinn pínu slappur og fólk virtist ekki ætlað koma þannig ég hætti við allt en þá voru Haukur Ben og Einar á leiðinni þannig ég hringdi í Önnu Lind og sagði henni að koma ...jadí jadí jada ...það komu hátt í 20 manns hingað og bara svaka stuð. Ég fór reyndar ekki í bæinn því ég vildi ekki verða veikur því..

..daginn eftir fór ég í sumarbústað með fjölskyldinni á Flúðum. Þar sá ég vel gosið ..spurning með myndir fljótlega? Fannst alveg magnað að sjá þetta og ótrúlegt að hugsa til þess að flug var (og er enn að hluta þegar þetta er skrifað) í lamasessi og fyrir ufan mig sá ég litla rellu. Ótrúlegt hvað náttúran er öflug og tilviljanir ráða því hvernig fer samanber vindátt. Þetta gos hefur pottþétt haft djúp áhrif á líf margra. Maðurinn sem var fastur í París og dúsaði á kaffihúsi þar sem hann kynntist fyrstu ástinni í lífi sínu ...bara að búa til en þetta hefur eflaust gerst. Og kannski var einhver drepinn en það er ekki eins góð saga. Pottþétt hægt að gera gott kvikmyndahandrit í kringum þetta gos.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?