<$BlogRSDURL$>

sunnudagur, janúar 18, 2009

Fór á Yes Man í bíó og hún er bara þrusu góð. Fær 8,8 í einkunn.

Árshátíð pókerklúbbsins Þriggja Para var á föstudaginn og það var mikið fjör ..íbúðin undirlögð af bjórdósum eftir kvöldið. Svenni rústaði seasoninu og ég endaði í 5. sæti sem er mjög slakur árangur eftir að hafa leitt seasonið á tímabili. Svo var farið á Hemma og Valda eins og venjulega og nokkrir fússballleikir teknir.

Í gær hélt Hlynur uppá þrítugsafmælið sitt og var það vel heppnað. Spiluðum fússball þar líka ..þetta er orðinn sjúkdómur. Svo var farið í bæinn og meiri fússball spilaður.

Það styttist í hina íslensku fússball deild ...það verður awesome! eða jafnvel legend, wait for it... ary!

miðvikudagur, janúar 14, 2009

hef séð nokkrar bíómyndir undanfarið. Afhverju ekki að gefa þeim einkunn...

Milk - 8,6
Zack and Miri make a porno - 5,8
Gran Torino - 8,6
Lars and the real girl - 8,0
The inside man - 8,0
Börn - 7,4
The Cottage - 6,7
The heartbreak kid - 7,0
Transiberian - 8,0


og svo eitthvað fleira örugglega sem ég man ekki.

sunnudagur, janúar 04, 2009

Gleðilegt ár og takk fyrir gamla!

Ég hef oft haft árslista yfir bestu plöturnar en ég klikkaði í fyrra og núna hef ég ekki hlustað mikið á nýjar plötur en ef vel gengur þá ætti listi að vera kominn í febrúar ..eða í lok ársins. Getum við ekki bara sagt að það sé marktækasti listinn því það hafi farið svo mikill tími í hann? Það sem ég geri oftast eftir árið er að down***** plötunum sem eru á hinum og þessum árslistum, hlusta og svo byggi ég listann minn á því. Finnst ágæt hugmynd eins og Sýrður Rjómi gerði að hafa líka lista yfir bestu lögin því það er minna um að fólk nenni að hlusta á heilu plöturnar.

Veit ekki alveg hver nýjársheitin mín geta verið ..set sjaldan einhver heit og hvað þá að framfylgja þeim. Held samt að ég eigi eftir blogga meira heldur en 2008 en þó ekki meira en t.d. 2005.

Haukur var með spá ..kannski ég spái smá ..Smáspá..

Liverpool verða Englandsmeistarar.

Einn mjög frægur tónlistarmaður deyr á árinu.

Atvinnuleysi mælist 8,3% í apríl

Gengisvísitalan verður 197 í júlí

Herbert kemur með nýjan disk

Albert verður nýtt nafn í tónlistinni sem vert er að fylgjast með

og eitthvað...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?