<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, maí 31, 2007

Ég lenti í mjög súrealískri aðstöðu um helgina. Mér var boðið í afmæli til serbneskrar stelpu sem ég vinn með og ég þurfti að pikka upp annann samstarfsmann minn sem kemur frá Filippseyjum á leið í partýið. Hann var með huge blómvönd úr rósum. Hann sat frammí. Við stoppuðum á rauðu ljósi. Fólk kannski hélt að við værum á deiti? Kannski.

Í partýinu (sem byrjaði kl 6 um daginn) voru 6 Serbar, 2 Filippseyingar, 1 frá Svartfjallalandi og svo ég Íslendingurinn. Spiluð var slæm Eurovisiontónlist, Serbarnir töluðu serbnesku, Filippseyingarnir filippseyísku (eða hvað segir maður?) og ég ...uu ...ég talaði ekki neitt ...fyrr en ég áttaði mig á að Svartfjallalandsstelpan (vegavinnuverkamannaskúr) talaði góða ensku og við gátum spjallað smá saman. Afmælisbarnið bauð upp á bjór en það var samt enginn sem vildi drekka og því var liðið edrú og stemningin eftir því ...ég var líka fljótur að láta mig hverfa.

Ég er að spá í að hafa casual grill í Kringlunni á föstudaginn ..crap það er á morgun ..enginn fyrirvari ..jæja þið ráðið þessu.

miðvikudagur, maí 23, 2007

Yo wassup!

Þið getið fylgst með Fígúru á www.myspace.com/figurastore

laugardagur, maí 19, 2007

föstudagur, maí 18, 2007

varð 10.000 daga gamall 15. maí.

Fígúra (nýja verslunin mín á Skólavörðustíg 22) opanar laugardaginn 19. maí. Ég verð með smá opnunarpartý frá kl 18-21 og ég væri ógó til í að sjá ykkur öll þar! :D :D

mánudagur, maí 14, 2007

...Fígúra varð fyrir valinu.

Eurovision ...ó Euriovision ...mjög gott gigg hjá Ragga. Helstu byttur landsins saman komnar. Ég hélt með Georgíu ..man ekkert í hvaða sæti hún lenti ..segjum 11.
Ég tapaði Vitaborgara því Úkraína lenti í öðru sæti ...Haukur græddi kassa af bjór á því (tvö ólík veðmál við ólíka aðila). Ég gaf sopa, mér voru gefin staup. Sælla að gefa en þyggja? JÁ! Ég sá ekki morgundaginn fyrr en daginn eftir ..ég meina ég sá ekki nýjan dag fyrr en um morguninn ..sko ég sofnaði kl 11 ..ég var dreginn úr partýinu sökum ölvunar ..samt heiti ég ekki Haukur, Gauti, Geir eða Daði ...held að þetta hafi ekkert verið ég ..finnst mun líklegra að þetta hafi verið Gauti ..enda ekki mikill munur á nöfnunum okkar ..bara eitt T ...enda Gauti oft kallaður Mr T ...ég er stundum kallaður Hasselhoff ...eða James Blunt! Dísess ég þurfti aftur að heyra þá viðlíkingu ...nú hef ég heyrt það 5 sinnum ..hef ákveðið að það sé hvorki slæmt né gott ...kannski 4 af 10 slæmt og 5 af 10 gott ..formúluna finniði á vísindavef Háskóla Íslands ..ég nenni ekki að linka á það ..þegar þið pælið í því þá linka ég mjöööög sjaldan ...nenni t.d. ekki að linka á dauðaspaðann þegar ég minnist (mynnist? nei minnist ..er amk ekkert minni maður þótt ég sé lélegur í stafsetningu) ..ég skrifaði samt einu sinni Eiðór þegar ég átti að skrifa Eyþór ..það var mjööög vandræðalegt ..topp 5 vandræðalegt. Á við þann sjúkdóm að stríða að stressast upp og blokkerast þegar aðrir sjá mig skrifa (allt á vísindavefnum: Linkur hér ..djók) Gerði eitt topp 5 vandræðalegt líka um daginn ..ég var að bíða eftir ungri konu á Sólon (bissnessviðræður) og inn labbar fimmtug kona og lítur aðeins í kringum sig og ég svo stressaður að þetta sé hún labba upp að henni og segi "ert þú að bíða eftir mér?" ...vá gaui ..þú gast sagt hvað sem er ...aaaallt annað en "ert þú að bíða eftir mér" ..stupid stupid!!
Aftur að linkununni á síðunni minni ...eða hvað ..leiðinlegt umræðuefni? amk finniði fáa linka ..end of umræða.
Serbía vann og Sjálfstæðisflokkurinn líka ...flott saman á sviði? Eflaust.

Hvað kusuði?
Djók

miðvikudagur, maí 09, 2007

Takk til þeirra sem tóku þátt í kosningunni ...en ég þarf á ykkur að halda einu sinni enn (lofa svo að bögga ykkur ekki aftur) ...er nefnilega kominn með annað nafn sem mig langar að testa á ykkur...

Fígúra

eða

TwoTwo

...Í búðinni verða nefnilega margar fígúrur á veggjunum og leirfígúrur til sölu.

laugardagur, maí 05, 2007

Innskot: ÞIÐ MEGIÐ AUÐVITAÐ LÍKA KOMA MEÐ YKKAR TILLÖGU ÞVÍ NÖFNIN ERU EKKI BINDANDI

---------------------------------------

Hvort nafnið er flottara:

Kandíflos

eða

TwoTwo

...á nýju búðina mína á Skólavörðustíg 22. Markhópurinn er aðallega stelpur á aldrinum 16-28 en svo droppa inn einstaka túristar til að kaupa töff póstkort, boli og listmuni og einnig strákar til að kaupa boli. Það er mikið um design föt ..hettupeysur, kjóla, boli og fylgihluti.

Hvort nafnið er flottara???? Endilega commentið takk (undir dulnefni þessvegna, vil að sem flestir commenti) ...var líka að taka upp þetta flotta nýja kommentakerfi ..það er kommentakerfið vinstra megin ...gamla er hægra megin.

VÓTÍ VÓT! :D :D :D :D :D :D

This page is powered by Blogger. Isn't yours?