<$BlogRSDURL$>

föstudagur, ágúst 31, 2007

Ætla að gera tilraun á morgun (laugardagur 1. sept.). Ég ætla að fara á Organ (Sprengihöllin er að spila) og hanga þar mest allt kvöldið, ímynda mér að ég sé í danmörku og drekka eftir því, vera í stemningu eftir því og athuga hvort að fólkið sem ég er með (ef einhverjir) geti verið í sama gírnum. Þá má heldur ekkert verað mæta kl hálf 3 og þurfa að kíkja annað klukkan 3. Ég ætla líka að gera tilraun að mingla við eitthvað lið og sjá hvað gerist. Verst er að það vantar borðfótboltaspil þannig þetta gæti orðið pínu gallað en staðurinn á víst að vera cool ..hef ekki komið þangað ..I´ve heard good things though.

Ef þetta gengur ekki upp þá er ég fluttur frá Íslandi.

En í kvöld er ég að fara á Nasa af öllum stöðum ..stídlordíó here I come!

Merkilega stutt í Roskilde myndirnar ...gaman að þessu.

miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Ölympics síðasta laugardag var rosalegt! Raggi og Anna stóðu sig vel að mínu mati og svo var partýið svo rosalegt að ég man ekki eftir því! Krista sagði að ég hefði skriðið undir borð með snakkskál og verið að jappla á snakkinu þar í einhvern tíma. Á blogginu hjá Ragga stendur að einhver hefði ælt í snakkskálina ...ég lagði saman 2 og 2.

...en kannski var ég það fullur að ég fattaði ekki að einhver hafi verið búinn að æla í skálina og ég farið undir borð með skálina og ég japplað á smá gubbi???

...ekkert búinn að gleyma Roskilde myndunum neitt sko ..þetta er allt að koma! :D :D :D :D :D :D :D :D

föstudagur, ágúst 17, 2007

búið að vera brjálað að gera...er ekkert hættur að blogga neitt

lenti í vandræðum með að setja myndirnar á netið

Haukur benti mér á nýjan myndabanka á netinu...of latur/bissí/furuhnétur að pæla í því strax

ég fann nýja síðu handa ykkur...

www.jumbo.is

...ég vissi ekki af þessum veislubökkum!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?