<$BlogRSDURL$>

laugardagur, mars 04, 2006

A little trip to Denmark

Ferðin til DK var alveg brill brill. Strax á fimmtudeginum (ekki síðasta heldur fyrir langa löngu) þá duttum við strákarnir rækilega í það á hinum marg fræga stað Wall Street. Á föstudeginum kíktum við í partý og svo á uppáhalds staðinn minn Stengade 30, þar var Mike Joyce úr The Smiths að DJ-ast og ég varð að taka í spaðann á manninum. Á laugardeginum sáum við Depeche Mode og það var alveg magnað að sjá þá, mikil stemning og mikið fjör hjá mér, Geir og Hlyni uppí stúkunni og maður var kannski full fullur og man því ekki alveg nákvæmlega hvaða lög þeir voru að taka og ég gleymdi að hafa augun á sviðinu allan tímann. Svo var veisla hjá okkur strákunum að drekka úr þeim bjórum sem skildir voru eftir ..nei ég segi svona ..en samt ekki:D
Þetta laugardagskvöld verður minnst fyrir góða tónleika annars vegar en hins vegar fyrir að aldrei á mínum 9500+ daga ferli hef ég verið jafn drukkinn! Ég las það fyrst á Dauðaspaðanum 3 dögum síðar að ég hafi dottið af stól inn á Wall Street og ekki verið hleypt inná staðinn aftur þegar ég gerði tilraun til að æla fyrir untan staðinn. Ég man nix og nada eftir þessu öllu saman. Svo loks þegar ég fór að muna eftir mér þá var ég búinn að labba amk 10 kílómetra í norður því ég ætlaði víst að finna einhvern stað en svo þegar ég loks kom þangað þá var þetta annar staður en ég ætlaði mér að fara á. Nokkrum kílómetrum síðar kl 8 var ég staddur í Metró á leið í austur en enda í vesturendanum við að metróvörðurinn spyr mig um miða sem ég er ekki með ...600 dkr sekt was the case. Svo 10 mín. síðar spyr annar vörður mig um miða og ég segi þá bara "Ive already been busted man" og ég fékk því ekki aðra sekt. Ég skreið svo í öllum fötunum í sófann hjá Snorra kl 10 um morguninn þreyttari en Geir Ólafs og aumari í fótunum en Larry Flint.

Ég var með bílaleigubíl í 4 daga frá því trausvekjandi fyrirtæki Rent a Wreck og ég náði að næla mér í stöðumælasekt uppá 500kr ...þannig ég er kominn með 1100 danskar krónur í sekt eftir ferðina (eins gott ég leigði ekki flugvél líka). Spurning að sjá hvort ég komist upp með það að borga hana ekki ..ef ég lendi í vandræðum þá læt ég bara Theó sys bjarga mér.

Ég heimsótti skólann sem ég var í haust og það var gaman.

Ég keypti demó tölvu í Elgiganten og fór með myndavélina í viðgerð (engar myndir voru teknar í ferðinni)

Ég, Snorri og Nonni tókum þriðjudagsfyllerí og þá voru þeir álíka rosalegir og ég var á laugardeginum. Það kvöld endaði hjá akkeri sem vó tonn og við reyndum að taka það með heim. (hver vill vakna við hliðiná akkeri?)

Ég sendi búslóðina heim ..27 lausir hlutir í horni á gámi er ekki sannfærandi ..en sjáum til.

Á leiðinni heim þá hitti ég Freyju og ég vildi setjast við hliðiná henni í flugvélinni þannig þegar við fórum inní vél þá spurði ég kallinn sem átti að sitja við hliðina á henni hvort hann væri ekki til í að færa sig í mitt sæti. Hann gerði það með trega en svo fattaði ég að það var ég sem átti að sitja við hliðina á honum en ekki Freyja sem skipti svo sem ekki máli nema hvað að svo fattaði ég að það var rangt ..heldur átti ég að sitja í hinni röðinni (í E en ekki í C) þannig hvorki Freyja né ég áttum að sitja við hliðina á gaurnum þannig við rákum aumingja gaurinn í Freyju sæti og sátum svo í hans sæti og auða sætinu við hliðiná sem átti að vera autt. ...æ hann átti þetta örugglega skilið ..sennilega morðingi og ABBA fan.

Ég vil þakka Snorra fyrir að hafa þurft að þola mig í allan þennan tíma ..það hlýtur að hafa verið hressandi að hafa mig dísssjeeeed í sófanum á meðan þú varst í tölvunni. Kúdjós wúvísúví!

Ég sagðist ætla að djamma í kvöld (laugardagur) en það er bara no way Ósei ..ég farinn í bað með kertaljósum, rauðvíni og ljúfri ABBA tónlist ..eeeeekki ...oj þetta er í annað sinn sem ég skrifa þetta hræðilega orð ABBA ..aaaaarrrgh og núna í þriðja sinn!! this got to stop! this bloggfærslingur got to stop too!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?